Jæja steig á vigtina í gær og mér til mikilar gremju var það upp 100 gr. Þessi vika var mér mjög erfið..var oft svöng og langaði oft í nammi
en stóð mig bara ágættlega eða 100% eftir danska fyrir utan einn dag þar sem ég fékk fólk í mat og drakk ég þá 3 lite bjóra og borðaði 60 gr of mikið af brauði. Var því vægast sagt vond yfir þessum 100 gr enda fannst mér ég ekki eiga það skilið. Var svo vond að ég lét það bitna á fólki sem mér þykkir vænt um
ég steig svo á vigtina í dag og þá kom annað í ljós - 400 gr sem mér finnst allveg sanngjarnt miðað við bjórinn og brauðið. Allavegana hugsaði mig mikið um í gær og satt best að segja er ég búin að fá nóg af því að tapa mér við fólk sem mér þykkir vænt um af því að ég er svo viðkvæm fyrir þyngdinni….búin að tapa mér síðasta árið á foreldrum mínum, manninum mínum og vinkonu minni finnst þetta bara orðið gott. Góð vinkona mín benti mér á það í gær að það að taka sig á getur engin gert nema maður sjálfur og ég hef allt of lengi stuðst við þá sem eru mér næstir. Þannig að ég hef ákveðið að hætta að hugsa svona mikið um þetta og pirra mig á þessu átaks dæmi, borða bara hollan mat (eftir danska) og ef ég léttist þá léttist ég. Þar sem ég ætla að hætta að hugsa um þetta svona mikið þá er skref 1 að hætta með átakssíðuna. Vill því þakka öllum kærlega fyrir að hafa fylgst með mér og kommentað ég met það mikils og óska ykkur góðs gengis áfram.
Over and out
Frk. fiskur
Hæ hæ
Langt síðan ég hef skrifað eitthvað en það er ekki af því að ég er hætt heldur bara vegna þess að það er búið að vera mikið að gera hjá mér.
Danski er málið
og það gengur upp og niður en núna er allt að komast í fastar skorður og stefnan tekin á góðan árangur. Ég er búin að ákveða að fara ekki í vigtun í Garðabæinn finnst tímarnir ekki hennta mér og hef ákveðið að senda henni Heiðu vinkonu minni tölurnar mínar 1 sinni í viku í staðinn :-) en ætla að vigta mig á hverjum miðvikudegi þannig að fylgist spennt með.
Þá er stefnan tekin á leikfimi 4 sinnum í viku og fór ég í fyrsta skipti í gær og guð minn góður hélt ég myndi deyja eftir 30 mín. En þetta kemur vonandi hægt og rólega.
Læt þetta duga í dag. Tölur á morgun.
Hæ loksins almennileg vika
þessa vikuna fóru 1,4 kg. Var að vona eftir 2 kg þar sem að ég þyngdist svo mikið síðast en þetta kemur hægt og rólega og sýnir bara ef maður svindlar þá getur svindl kíló stopað lengur en bara nokkra daga eða viku.
Svo er bara að tækla næstu viku líka
Vona að allir eigi góða vigtun.
Hæ öll sömul
Helgin var ja leiðinleg hehe….nei nei ekkert svo. Laugardagurinn fór að mestu í það að læra lögfræði sem betur fer var félagskapurinn góður og hægt að hlæja inn á milli að því hvað lögin eru stundun heimskuleg. Á sunnudaginn var vaknað kl 6,30 og byrjað að læra kl 7 takk fyrir kærlega. Lærði til hádegis en þá tók klipping og litun við. Svo afrekaði ég það að borða pizzu um kvöldið já og ekki ddv væna pizzu heldur bara alvöru pizzu sá mikið eftir því um kvöldið og átti erfitt með að læra vegna samviskubits allt kvöldið.
Framundan núna er svo vinna, hádegismatur (sem verður samloka með skinku og osti og grænmeti) og svo meirri vinna og svo læra
veiii. Verður mjög mikið að gera fram til 24 ágúst en ætla að halda mataræðinu í lagi þó að það verði engin leikfimi. Eftir 24 ágúst er ég búin að taka mín síðustu próf í Meistara gráðunni og þá er það bara að klára að vinna út ágúst og svo er það Meistara ritgerðinni. Skemmtilegir tímar framundan.
Jæja þá er komin föstudagur aftur…það eru alltaf föstudagar eða mánudagar. Plannið mitt um helgina hljóðar ekki upp á marga fiska þar sem að ég verð heima að læra og læra á meðan maðurinn og barnið skemmta sér saman.
Matarmálin í dag eru búin að vera fín. Ætla að hafa kjúkling og grænmeti í kvöld, cherrios í morgunmat, egg í hádeginu og kjöt annað kvöld. Annað er ég ekki búin að ákveða
Hafið það gott um helgina og passið ykkur á nammi grísnum.
Jæja grunnaði ekki gvend upp um 3 kg eftir sukkið um versló, vona að eitthvað af þessu sé vökvi. En nú er bara að halda sínu striki sem er ekki auðvelt eftir svona mikið sukk en dagurinn í dag hefur gengið vel fyrir utan nokkur vonleysis köst en það fylgir víst eftir svona sukkkkkk
Læt þetta duga í dag er í engu stuðu til að blogga og lögfræðin bíður eftir mér jibbbýýýý
Jæja ég er komin úr fríi
átti mjög góða 10 daga og nú er alveran tekin við. Í þessum mánuði verð ég að klára sumarvinnuna, fer í tvö súkrapróf og byrja á mastersritgerðinni minni, þá er stefnan á að 4 kg fari fyrir fullt og allt.
Matarmálin gengu vel fram á föstudag (í 7 daga) fyrir utan einn lite bjór á heitasta degi sumarsins en þegar kom að þessari helgi hefði ég lofað að fá mér í glas þar sem að það vinkona mín og maðurinn hennar eru bara á Íslandi hér í sumar. Ég fékk mér því smá bjór og smá rauðvín….helgin endaði semsagt svona: bjór 12 stk, rauðvín nokkur glös, romm, nammi, snakk, ís og pizza í gær takk fyrir þarf varla að segja meirra eða hvað?
Af þessu uppskar ég örugglega fullt af kg finn bara hvað ég er blásin út, ætlaði ekki að komast í pils í morgun
þar að auki verða 4 erfiðir dagar fram undan að losa sykurinn út úr líkamanum…en það þýðir víst ekkert að kvarta enda var þetta algerlega sjálf valið. Nú er bara að halda áfram og er vigtun á miðvikudaginn og þá verður staðan tekin.
En eins og ég sagði stefnan tekin á 4 kg í þessum mánuði.
Ég er alveg að verða komin í frí
eins og ég sagði ykkur verð ég ekki mikið í netsambandi fram á svona miðvikudag þannig að ég býst við að vigtunartölur komi inn á fimmtudaginn.
Annars gengur bara vonum framar þetta kemur allt
nammigrísinn hefur ekki látið sjá sig í dag, held að hann sé að ná því að hann fái ekkert.
Hef litið að segja núna annað en hafið það gott um helgina.
….ekki matarlega séð
en frá og með laugardeginum er ég komin í 10 daga frí og er þetta langþráð frí. Sumt fólk virðist aldrei skilja afhverju við sem erum í skóla þurfum frí þar sem við getum tekið okkur frí svona inn á milli…emm nei allavegana ekki í öllu námi og ekki mastersnáminu sem ég var í. Í fríinu verðum við í bústað helmingin af tímanum og svo út og suður, kvíður pínu fyrir matarmálunum þar sem að það er fast inn í hausnum á mér að þegar maður er í fríi á maður að geta borðað nammi, drukkið vín osfrv. En það er nátturlega vitlaus hugsunar háttur, fríið er nátturlega til þess að vera með fjölskyldunni og gera eitthvað saman en þarf að minna mig á það núna á 2 sek fresti. Var að enda við að gera innkaupalista og hann er nokkuð langur og inniheldur mikið af ávöxtum
enda ætla ég ekki að fara að borða salgæti kemur ekki til mála en ég geri mér alveg grein fyrir því að þetta verður ekki auðvelt, en ætla að taka einn dag í einu.
Annars gengur vel eða eins vel og hægt er, þetta er nátturlega ekki auðvelt…..er t.d með salgætisgrísinn á öxlinni núna og vill hann fá nammið sitt….við erum í keppni hver gefst fyrst upp…í þetta skiptið ætla ég að hafa betur
Tvö blogg á tveimur dögum, hvað er að gerast
síðustu dagar hafa gengið vonum framar og er ég t.d búin að fara í leikfimi tvo morgna í röð kl 6.15 takk fyrir
Ætlaði að fara bara 3 í viku á morgnana en er alvarlega að pæla í að fara bara 5 sinnum, þetta er bara svo gaman.
Matarmálin batna með hverjum deginum og var dóttir mín hissa á mömmu sinni í morgun þegar hún sá mig fara með bláber, gúrku og blómkál í nesti í vinnuna.
Er rosalega sátt eitthvað núna að vera að vinna í mínum málum enda komin tími til þar sem að þyngdin er farin að koma í veg fyrir að ég geri það sem mig langar til. Var t.d að hugsa um það í gær að ég mig langar til útlanda en svo hugsaði ég með mér að það væri betra að bíða til næsta sumars, hef bara enga löngun í að fara út í þriðja skiptið svona óánægða með sjálfa mig og geta ekki keypt það sem ég vill eða látið taka myndir af mér. þegar maður er farin að hugsa svona er eins gott að gera eitthvað í málunum
og það er ég að gera með því að hugsa um ein dag í einu.
Hafið það gott í dag.